Niðurstaðan okkar var að það er enginn ein rétt leið til að hreyfa sig. Það er enginn líkami eins byggður svo maður þarf að finna sjálfur hvernig líkami manns virkar. Fólk hreyfir sig á mismunandi hátt.
Við vildum líka læra um próteinduft og stera. Við tókum viðtal við tvær manneskjur og hvorugt þeirra mældi mikið með próteini nema fyrir íþróttafólk sem æfir mjög mikið og skortir prótein. Við komumst að því að það er fullt af fólki á Íslandi sem að tekur stera og er það auðvitað ekki gott fyrir mann. |