Fæðubótarefni
Notkun fæðubótarefnis hefur farið mjög hækkandi seinustu ár, en það er mikið af fólki sem veit mjög lítið hvað það er að fá sér og hversu stóran skammt það á að fá sér. Fæðubótarefni eru matvæli sem eru ætluð sem viðbót við venjulegt fæði og eru með hátt hlutfall af vítamínum, steinefnum eða annars konar efnum sem hafa næringar- eða lífeðlisfræðileg áhrif.