Fasta
Ef að fólk vil fasta þá þarf það að passa sig mjög vel af því annars getur það farið illa. Þannig hérna er plan ef þið viljið prófa.
2 dagar fyrir föstu
Morgunmatur: Ferskt ávaxtasalat með muldum möndlum út á. Drekka má ávaxtasafa, grænmetissafa og jurtate.
Hádegisverður og kvöldverður: Stórt ferskt salat. Á salatið má setja hnetur, fræ og alfalfaspírur. Einnig er gott að borða söl, því þau innihalda mikið af góðum næringarefnum og hjálpa til við að losa út úrgangsefni.
Snarl: Ávextir og grænmeti skorið niður í stangir, einnig lítið eitt af hnetum og fræum.
Dagur 1
Veldu eitt af eftirfarandi til að fasta á.
Epli. Borðaðu allan ávöxtinn með hýðinu, a.m.k. 2½ kg á dag. Úr þeim má einnig gera mauk og safa.
Melóna. Nota má hvaða melónu sem er, a.m.k. 3 kg á dag.
Hýðishrísgrjón. Líði þér þannig að þú verður að fá fasta fæðu er hægt að fasta á hýðisgrjónum, en þá þyrftir þú að fasta lengur, í a.m.k. 1 viku. Þessi fasta þykir frekar leiðinleg, því þú borðar aðeins hrísgrjón, án sósu eða olíu. Þetta virkar vel fyrir þá sem treysta sér ekki í safaföstu og viðheldur best blóðsykrinum fyrir þá sem hafa of lágan blóðsykur.
Grænmetissafar. Mjög hreinsandi og basísk samsetning er gerð úr 1 l af gulrótarsafa og ½ l af sellerýsafa, ½ l af rauðbeðusafa og pressa saman við búnt af steinselju. Saman við þetta er síðan bætt 1 l af vatni, svo að þetta verða 3 l. Drekktu bolla af þessari blöndu á hálftíma fresti, þar til það er búið. Síðan er drukkið vatn.
Kalíum soð. Skerið lauk, blaðlauk, gulrætur, næpur, grænkál eða hvaða grænmeti sem er ásamt smá þangbút og sjóðið vel í 2 l af vatni. Drekkið soðið yfir daginn. Sé fólk mjög kulvíst og sé kalt úti, þá er ráðlegt að fasta á þessu. Þetta hreinsar ekki eins kröftuglega, en virkar samt. Grænmetissafa og kalíumsoð má nota til skiptis.
Dagur 2 og 3
Þessa tvo daga er haldið áfram með sömu föstu og fyrsta daginn. Mikilvægt er að blanda ekki saman grænmeti og ávöxtum sama daginn. Halda má föstunni áfram í 1 viku, en það fer eftir líðan og líkamlegu ástandi. Komi ekki upp neinar aukaverkanir er það í lagi.
Dagur 4
Á fjórða degi er fastan rofin með því að hefja neyslu fersks grænmetis og ávaxta. Gott er að rjúfa föstuna með kalíumsoði. Nota á sama fæðið og fyrstu 2 dagana fyrir föstu.
Eftir hreinsunina er líkaminn mjög viðkvæmur, því er afar mikilvægt að borða ekki mjög þungan mat í fyrstu. Nú má aftur fara að taka inn vítamín og steinefni. Eplaedik, acidophylus, hreinsijurtir og psyllium husk á að taka áfram.
Dagur 5, 6 og 7
Sama fæði og á fjórða degi.
Dagur 8-14
Þessa daga ætti að borða 50% hrátt fæði og 50% soðinn mat. Til að byrja með ætti að borða lítið prótín. Borða ætti hveiti og aðrar kornafurðir í hófi, því þær eru frekar þungmeltar.
Dagur 15-21
Halda áfram á sömu braut og liðna viku.
Fæðutegundir sem ætti að forðast þessa viku en helst í mánuð
Mjólk, smjör, ostur, egg, jógúrt, kjöt og allar kjötafurðir, sykur allt sem sykur er í, salt, kaffi, te (nema jurtate), gos, franskar, snakk, dósamat, frosin mat, kökur og sætabrauð, vín og allt sem ekki eru hreinar náttúruafurðir.
Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.