Ketó
Ketó mataræði er mjög mikið í umræðunni þessa dagana. Eitthvað sem fáir vissu hvað var fyrir 5 árum er nú orðið á allra vörum og jaðrar við tískubylgju. Ef þið vitið ekki hvað Ketó er þá í mjög einfölduðu máli snýst þetta um að borða þannig að líkaminn skipti úr því að nota kolvetni sem orkugjafa yfir í það að nota fitu sem orkugjafa.
Þetta felur í sér að hafa macro næringarefnin (fitu, kolvetni og prótín) í ca. þessum hlutföllum:
Kolvetni: 2-5 %
Prótín: 12-20 %
Fita: 75-80 %
fyrir flesta er þetta mjög erfið breyting því að þetta útilokar nánast alla kolvetnaríka fæðu. Allt kolvetni, sterkjuríkt grænmeti og flestir ávextir eru útilokaðir. Til þess að komast í þetta ketó-ástand þarf mataræðið að vera mjög strangt og það býður í raun ekki uppá neitt „svindl“ því líkaminn er fljótur að skipta aftur yfir í kolvetnabrennslu. Það getur verið erfitt að fara yfir í venjulegt fæði aftur vegna þess þegar þú færð kolvetni aftur þá veit líkaminn ekki alveg hvernig á að bregðast við og þá er mikið léttara fyrir fólk að fitna mjög hratt aftur.