Paleo
Paleo-mataræðið er oft kallað steinaldarmataræðið. Talið er að nútímafólk eigi það til að borða of mikið af óhollri fitu, viðbættum sykri, og glúteinríkri fæðu. Þeim sem finnst Paleo-mataræðið hljóma vel borða eins og við gætum ímyndað okkur að steinaldarmenn hafi borðað fyrir. Fyrir þann tíma borðaði fólk mest dýraafurðir, ávexti eftir árstíðum, grænmeti sem óx villt í náttúrunni og eitthvað af fræjum, hnetum og þess háttar.
Paleo samanstendur að mestu leyti af próteini úr dýraríkinu þ.e. kjöti, fiski, eggjum og kolvetnum úr grænmeti og ávöxtum ásamt hnetum í hófi eða í meðallagi. Í grunninn er paleo-mataræðið frekar einfalt og byggist á því sem við köllum „hreinan mat“. Paleo er ekki lágkolvetnafæði.
Hvað má borða á Paleo?
Holla fitu, t.d. ólífuolíu, avókadóolíu, kókosolíu, dýrafitu.
Kjöt, t.d. lambakjöt, nautakjöt, kjúkling o.sv.frv.
Innmat. Lifur, nýru, merg, hjörtu o.s.frv.
Fisk og aðra sjávarrétti. Til dæmis lax, silung, ýsu, þorsk, rækjur og annan skelfisk.
Egg.
Grænmeti, allar tegundir.
Sýrt grænmeti, t.d. súrkál og kimchi (svo lengi sem það er sykurlaust).
Ávexti og ber. Til dæmis epli, banana, perur, avókadó, jarðarber og þess háttar.
Hnetur og fræ. Til dæmis valhnetur, möndlur, graskersfræ, sólblómafræ.
Salt og krydd án aukaefna og sykurs.
Hreint hunang, hreint hlynsíróp og stevia ásamt þurrkuðum ávöxtum.
Hvað má ekki borða á Paleo?
Sykur og maíssýróp, Unnar matvörur, Mjólkurvörur, Baunir, Kornvörur, Gervisykur, Transfitur og grænmetisolía.